Ríkisstjórnin ákveður að teflonhúða skjaldarmerkið
Teflon er tímanna tákn, segja kostunaraðilar sem vilja teflonhúða Alþingishúsið
Það hefur ekki farið mikið fyrir því í fréttum að á síðasta ríkisstjórnarfundi var ákveðið að teflonhúða íslenska skjaldarmerkið sem tilraun til að uppfæra það og aðlaga samtímanum og halda áru landsins hreinni.
Teflonhúðun skjaldarmerkisins er gerð í tilraunaskyni og gert ráð fyrir að teflonhúðin endist meðan núverandi ríkisstjórn situr eða þar til hún flagnar af.
Margir á Alþingi hafa mikinn áhuga á því að teflonhúða Alþingishúsið eins og það leggur sig og hefur verið talað um að fá öfluga kostunaraðila á borð við BORGUN og LÍÚ til að fjármagna verkið. Eðlilegt væri að kostunaraðilar (sponsorar) bæði þessarar framkvæmdar og einnig einstakra þingmanna fengju að setja upp auglýsingar í þingsal á veggnum bakvið þingforseta og ráðherrastólana sem öll þjóðin gæti séð í beinum útsendingum úr þinginu, auk þess sem þingmenn fengju heimild til að ganga í búningum með merki síns eða sinna sponsora og gætu þannig selt lysthafendum auglýsingar á búningum sínum.
Fánanefnd situr einnig á rökstólum og lætur kanna kostnað við að íslenski fáninn verði framvegis úr blöndu af goretex, steinull og næloni, þannig að auðveldara verði að ná úr honum blettum.