Ég er alls ekki búinn að gefa frá mér hugmyndina um að vera með einn eða tvo verðbréfasala í kofa hérna í garðinum. Sem sé í lausagöngu og afgirtir í vírneti en ekki innilokaðir með ómanneskjulegum hætti í banka- eða kauphallarbúri.
Vistvænir verðbréfasalar í góðum og fallega stöðluðum jakkafötum með lífræna vottun geta gefið mun meira af sér en bæði garðálfar, minkaeldi, refabú og venjulegar hænsnategundir, að minnsta kosti fram að næsta hruni.