SAMTÖK UM BETRI BÍL HANDA SAMGÖNGURÁÐHERRA
Krefjast þess að ráðherrann fái Gurkha-torfærutröll með hvalveiðiskutul á þakinu sem mundi gera ráðherranum kleift að stunda hvalveiðar af landi
Fátt sýnir betur smásálarskap Íslinga en hin samansaumaða umræða um ráðherrabíla sem fer af stað við hver stjórnarskipti, rétt eins og fólk geri sér ekki grein fyrir að ráðherrar þurfa bæði ráðherrastóla og ráðherrabíla til að sýna veldi sitt á sama hátt og enginn getur verið kóngur án þess að hafa aðgang að góðu hásæti og fallegri kórónu.


Sérstaklega er óviðkunnanleg umræðan um okkar góða samgönguráðherra Jón Gunnarsson sem virðist ætla að láta bjóða sér skitinn slyddujeppa af Toyota-gerð í stað þess að kaupa almennilegt torfærutæki á borð við Gurkha Armored Tactical Vehicle frá kanadíska fyrirtækinu Terradyne Armored Vehicles sem nú eru loksins fáanlegir á almennum markaði.
Rætt hefur verið um að stofna samtök stuðningsmanna samgönguráðherra hérna í kjördæmi hans og krefjast þess að Toyotan verði sett á bílasölu og í staðinn fái ráðherra Gurkha-torfærutröll af dýrustu gerð, þessa sem er með hvalveiðiskutul á þakinu, þannig að ráðherrann gæti stundað hvalveiðar af landi í stopulum tómstundum sínum.
Það gefur augaleið að í landi þar sem vegir eru sjaldnast í góðu ástandi þurfa samgönguráðherrar að vera á betri bílum til að komast leiðar sinnar en kollegar þeirra í löndum þar sem allir vegir eru malbikaðir og rennsléttir.
Það er leiðinlegt að þjóðin skuli einskis meta þá auðmýkt ráðherra að láta sér yfirleitt duga fjöldaframleidda slyddujeppa til að komast leiðar sinnar í stað þess að fara fram á hraðskreiðar alvörubifreiðar því að tími hvers ráðherra er dýrmætur.

