VIÐVÖRUN OG INNILEG AFSÖKUNARBEIÐNI TIL HUXANLEGRA ÁHORFENDA Í TILEFNI AF AUGLÝSTRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ 17. JÚNÍ
TIL ÞEIRRA SEM MÁLIÐ VARÐAR:
Mér finnst ánægjulegt að sjá að Líf-myndirnar sem ég gerði fyrir um þrem áratugum ásamt með mörgu góðu fólki skuli enn þann dag í dag vera taldar boðlegt dagskrárefni Stöðvar 2 að kvöldi þjóðhátíðardagsins 17. júní. Þessar myndir hafa orðið lífseigari og vinsælli heldur en mig nokkurn tímann óraði fyrir og var ég þó með bjartsýnni mönnum á þeim árum sem þær voru gerðar.

Hitt er verra að þessi boðaða sjónvarpssýning er ekki með mínu leyfi og það er skýrt og mjög gróft brot á heiðursrétti höfundar að bjóða almenningi upp á að sjá afrit af 30 ára gömlum og gatslitnum sýningareintökum sem á sínum tíma þurftu að þola rispur og slit á ferð gegnum flestar kvikmyndasýningavélar í kvikmyndahúsum landsins.
Þetta sem sagt um heiðursréttinn en hvað varðar höfundarrétt og eignarrétt þá leikur enginn vafi á því að það er Nýtt líf ehf og ég sjálfur einvörðungu sem eigum rétt til eintakagerðar af hinum upprunalega filmuorigínölum. Framkoma þess fyrirtækisins Senu h.f. sem seldi hálfri þjóðinni dvd-eintök af þessum myndum gerð eftir fornum bíósýningareintökum sem fyrirtækið komst yfir ásamt fleiri myndum við gjaldþrot mér óviðkomandi aðila í kvikmyndabransanum hefur verið ótrúlega hráslagaleg og batnaði því miður ekki þegar þetta fyrirtæki skipti um kennitölu.

Þá sem horfa á þessar myndir mínar í þessari útgáfu bið ég afsökunar á fullkomnum skorti á myndgæðum og vil að áhorfendum sé ljóst að þessar sýningar fara ekki fram í mínu nafni né með mínum vilja, hins vegar þætti mér vænt um ef Kvikmyndastofnun Íslands fengi einhvern tímann áður en það verður um seinan áhuga á því að taka sig til og aðstoða við að bjarga því sem bjargað verður af þessum myndum mínum yfir á rafrænt form með þeirri virðingu sem þessar myndir verðskulda í okkar frekar fátæklegu kvikmyndasögu.
Afsakið þetta ónæði út af nokkrum gömlum bíómyndum – athugið að þessi sýning sem ég ber enga ábyrgð á sýnir ekki aðeins fullkomna fyrirlitningu á höfundarrétti, heiðursrétti og íslenskri kvikmyndagerð heldur einnig á rétti íslenskra áhorfenda til faglegra vinnubragða af hálfu þeirra sem bera þessar myndleifar á borð.
Ég er þakklátur fyrir það langa líf sem þessar myndir hafa þegar notið en harma þessa misnotkun á gömlum upplituðum eintökum sem ekkert erindi eiga fyrir almenningssjónir. Íslensk kvikmyndagerð á betra skilið.
Þráinn Bertelsson
